Efling stéttarfélag hefur undirritað kjarasamning við ríkið. Samningurinn felur í sér taxtahækkanir að fyrirmynd Lífskjarasamningsins og styttingu vinnuvikunnar er fram kemur á vef Eflingar.
Samningurinn tekur til verkafólks mestmegnis á Landspítalanum en einnig í öðrum stofnunum ríkisins á félagssvæði Eflingar. Um er að ræða störf við umönnun, þrif, þvotta, í mötuneytum og fleira. Undir samningnum starfa um 540 félagsmenn, þar af um 80% konur.
Samningnum fylgja viðbótaraðgerðir sem munu koma til móts við kröfuna um leiðréttingu á kjörum kvennastétta. Gildistími samningsins er til 31. mars 2023.
„Viðræður okkar við ríkið hafa gengið vel nú á lokametrunum og sýna skýrt hverju er hægt að áorka þegar fólk eru lausnamiðað og hlustar hvert á annað. Ég mun mæla með þessum samningi við mína félagsmenn enda eru í honum mikilvæg skref í átt að því sem Efling hefur sóst eftir í viðræðum við ríki og sveitarfélög. Ég er bjartsýn á hann verði samþykktur af félagsmönnum okkar á Landspítalanum og öðrum ríkisstofnunum,“ er haft eftir formanni Eflingar, Sólveigu Önnu Jónsdóttur.
Félagið mun fljótlega kynna samninginn og boða til atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna.