Fyrstu innlendu smitin af kórónaveirunni COVID-19 greindust í dag og hefur Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra þess vegna hækkað viðbúnaðarstig sitt í svokallað neyðarstig. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í dag.
Þar kom fram að sex ný tilfelli hafa greinst í dag, þar af tvö innlend. Alls eru tilfellin orðin 43.
Innanlandssmittin komu upp á höfuðborgarsvæðinu. Þau smituðu höfðu verið í samskiptum við smitaða og veika einstaklinga sem höfðu verið á skíðasvæðum erlendis.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands birti færslu á Facebook rétt í þessu.
„Núna áðan var lýst yfir neyðarstigi almannavarna vegna kórónaveirunnar. Það þýðir að meiri þungi mun færast í aðgerðir stjórnvalda og þeirra stofnana sem hafa hlutverk í að hemja útbreiðslu veirunnar en þessi breyting mun ekki hafa áhrif á almenning strax. Það er hins vegar þannig að það er óumflýjanlegt að einhverjar takmarkanir verða settar á mannamót og samkomur á næstunni til að hefta útbreiðsluna. Nú sem fyrr skiptir það öllu máli að við leggjum öll okkar af mörkum til að það megi takast að hægja á útbreiðslunni,“ skrifar hún meðal annars.