Mögulegt er að Íslendingur taki við danska liðinu Lyngby en greint var frá því fyrr í dag að Freyr Alexandersson væri hættur þjálfun liðsins og væri að taka við starfi þjálfara hjá hinu belgíska Kortrijk. Félagið er sem stendur í neðsta sæti deildarinnar í Belgíu og hefur skipt um þjálfara svo oft á undanförnum árum að það er í raun ótrúlegt.
Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, er sagður vera einn af þeim sem koma til greina sem eftirmaður Freys en hann hefur verið orðaður við ýmis þjálfarastörf erlendis á undanförnum vikum en Tipsbladet setti saman lista yfir líklega eftirmenn. Aðrir menn á listanum eru þeir Daniel Agger, sem lék með Liverpool, en hann þykir efnilegur þjálfari og Niels Frederiksen, fyrrum þjálfara Lyngby, þykir líklegastur. Hann stýrði einnig stórliðinu Bröndby um tíma. Fyrir Lyngby leika þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Sævar Atli Magnússon, Kolbeinn Finnsson og Andri Lucas Guðjohnsen.