Jón Gnarr segist ekki hafa haft tíma til að hugsa um forsetaframboð en útilokar ekkert í þeim efnum.
Síðan Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti í áramótaræðu sinni að hann hyggðist ekki bjóða sig fram til forseta í þriðja sinn, hafa nokkrir stigið fram og sagst ætla bjóða sig fram og enn fleiri hafa verið nefndir á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.
Jón Gnarr, sem vart þarf að kynna, segir að einhvern „slæðingur af fólki“ hafa hvatt hann til að bjóða sig fram til forseta en að hann hafi ekki haft tíma í að hugsa um það af alvöru, þar sem hann er að byrja að æfa fyrir leikritið and Björk of course… sem Leikfélag Akureyrar sýnir í vetur.
„Það er einhver slæðingur af fólki búinn að hvetja mig til dáða og nú siðast Gísli Marteinn á twitter. En ég var að byrja æfingar á leikriti á Akureyri og hef bara ekki haft höfuðpláss í miklar pælingar,“ svaraði Jón Gnarr í samtali við Mannlíf.
Aðspurður hvort þetta þýddi að hann útiloki ekki framboð svaraði Jón:
„Útiloka ekkert.“