Unglingsdrengir réðust með höggum og spörkum á umsjónarmann skíðasvæðisins í Grafarvogi í gærkvöldi þegar hann gerði athugasemdir um að þeir færu ekki eftir reglum svæðisins. Unglingarnir réðust með höggum og spörkum á umsjónarmanninn. Unglingarnir voru farnir þegar lögregla kom á staðinn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu, en hún fékk tilkynningu um árásina í gærkvöldi kl. 19.15.
Maðurinn hafði samband við lögreglu en þegar hún mætti á svæðið voru drengirnir horfnir.
Í samtali við Vísi segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, að maðurinn sé ómeiddur.
Á Facebook-síðu skíðasvæðisins eru vitni að árásinni, ef einhver eru, beðin um að gefa sig fram.
Klukkan 19:30 var tilkynnt um nokkra drengi sem brutu rúðu á sundstað í austurborginni. Atvikið náðist hugsanlega á upptöku eftirlitsmyndavélar.
Tveir karlmenn í mjög annarlegu ástandi voru handteknir í tveimur aðskildum málum í og við bráðamóttökuna Fossvogi í nótt. Þeir voru með óspektir og hlýddu ekki ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa svæðið. Mennirnir voru að lokum handteknir og vistaðir í fangageymslu.
Skráningarmerki voru tekin af 56 ökutækjum vegna þess að ekki var staðið skil á vátryggingu og/eða þau færð til skoðunar.
Þessi mál og fleiri eru á meðal þeirra sem fram koma í tilkynningu lögreglunnar.