- Auglýsing -
Eygló Harðardóttir, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins, hvarf óvænt út úr pólitík á sínum tíma. Hún var þá talin vera framabraut og á góðum aldri. Í stað þess að sleikja út sendiherraembætti í útlöndum eða krækja sér í aðra bitlinga á vegum ríkisins fór hún sínar eigin leiðir. Eygló lærði mtreiðslu og byggði sér torfbæ og blokk. Nú hefur hún lokið sveinsprófi í matreiðslu. „Matreiðslunámið er eitt það allra erfiðasta sem ég hef gert, – leið stundum eins og ég hefði verið að hlaupa hálft maraþon eftir hverja 12 tíma vakt og að ég gæti bara eldað vondan mat í samanburði við alla snillingana sem ég var að vinna með,“ skrifar hún á Facebook.
Eygló hefur svo sannarlega látið hjartað ráða. Hún er í dag rúmlega fimmtug með fortíð sem þingmaður og ráðherra og hálf starfsævin framnundan …