- Auglýsing -
Stórmyndin Oppenheimer hlaut flest verðlaun á Golden Globe-verðlaunahátiðinni í Kaliforníu í gær. Myndin hreppti verðlaun sem besta dramakvikmyndin en einnig hlutu leikarar í aðal- og aukahlutverki verðlaun fyrir leik sinn.
Oppenheimer hlaut verðlaun fyrir bestu tónlistina og var Christopher Nolan valinn besti leikstjórinn. Barbie hlaut tvenn verðlaun en var tilnefnd í níu flokkum.