Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur farið fram á við ríkissáttasemjara að haldinn verði samningafundur í kjaradeilu Eflingar við Reykjavíkurborg. Þetta kemur fram á heimasíðu Eflingar. Þar segir að þess sé óskað að fundurinn verði haldinn strax í dag.
„Efling vill með þessu reyna til þrautar að þokast nær samkomulagi í deilunni. Samninganefnd Eflingar mun krefjast efnda á loforðum borgarstjóra um grunnlaunahækkanir en heildstæð útfærsla á þeim hefur aldrei verið lögð fram við samningaborðið. Einnig mun nefndin krefjast efnda á loforðum borgarstjórnarmeirihlutans um leiðréttingu á launum kvennastétta,“ segir í grein á vef Eflingar.
Í færslunni er farið yfir tillögur sem Efling hefur áður lagt fram. Þær eru eftirfarandi:
- Efling kynnti á samningafundum 16. og 31. janúar tvær ólíkar útgáfur af tilboði um launaleiðréttingu byggð á fyrirmynd frá 2005 í tíð Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra.
- Efling kynnti á samningafundi 18. febrúar tilboð um samsetta leið til launaleiðréttingar byggð á annars vegar jöfnun launabila í töflu að tillögu Reykjavíkurborgar og hins vegar á álags- og uppbótargreiðslum.
- Efling kynnti á samningafundi 27. febrúar tilboð um samsetta leið til launaleiðréttingar byggð á annars vegar grunnlaunahækkunum sem Dagur B. Eggertsson lýsti í Kastljóssviðtali og hins vegar á blandaðri leið uppbóta vegna eldri sérgreiðslna og starfstengdu jöfnunarálagi.
- Efling bauð borgarstjóra þann 3. mars að ganga til samkomulags um að hann staðfesti „Kastljósstilboðið“ gegn því að verkfalli verði frestað í tvo sólarhringa.
„Reykjavíkurborg hefur hafnað öllum ofangreindum tillögum Eflingar,“ segir í greinninni.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri boðaði Sólveigu Önnu á fund í vikunni. Hún sagðist tilbúin að hitta hann á fundi en setti tvö skilyrði. „Í fyrsta lagi að þú birtir opinberlega það tilboð (glærurnar) sem samninganefnd minni var kynnt á samningafundi 19. febrúar, daginn sem þú mættir í Kastljóssviðtalið, þannig að allir geti borið tilboðið saman við ummæli þín í Kastljósinu. Í öðru lagi að þú fallist á að mæta mér eða öðrum fulltrúa Eflingar í setti í útvarps- eða sjónvarpsviðtali áður en vikan er úti,“ skrifaði hún á Facebook.
Sjá einnig: Vill sjá glærur Dags og mæta honum í útvarps- eða sjónvarpsviðtali