Sara Pétursdóttir eða Glowie eins og hún kallar sig, birti glæslega meðgönguljósmynd af sér á Instagram á dögunum.
Glowie á von á barni með ljósmyndaranum Guðlaugi Andra Eyþórssyni en von er á barninu eftir um það bil fimm vikur. Glowie birti í upphafi nýja ársins fallega meðgönguljósmynd og það svarthvíta. Við færsluna skrifaði hún eftirfarandi texta (þýddan yfir á íslensku): „Það skrítnasta, brjálaðasta, mest þreytandi, erfiðasta og fallegasta sem ég hef gengið í gegnum. Og bara um sex vikur eftir. Bæði algjörlega dauðhrædd og svo spennt að verða mamma og það er svo skrítið að elska einhvern sem maður hefur aldrei hitt svo mikið.“
Hér má sjá hinu fallegu ljósmynd: