Jaroslava Davidsson, ekkja Ásgeirs Davíðssonar, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, er sögð vera meðal þeirra fimm sem lögreglan handtók í og við Hvalfjarðargöng um síðustu helgi í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál. Þetta kemur fram á Vísi, sem segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Jaroslava hafi verið ein þeirra sem lögreglan handtók á staðnum, en nokkur kíló af amfetamíni voru gerð upptæk við handtökuna.
RÚV greindi frá því nýverið að hinir í hópnum væru allt karlmenn og allt erlendir ríkisborgarar, sem lögreglan hefur haft afskipti af áður. Hefur lögreglan framkvæmt minnst sjö húsleitir í tengslum við málið og hafa hin handteknu öll verið úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald. Málið er að mestu talið vera upplýst, að því er fram kemur á Vísi.
Jaroslava er eins og áður sagði ekkja Ásgeirs Davíðssonar. Þau hjónin ráku saman nektarstaðinn Goldfinger um árabil, en tók Jaroslava við rekstri staðarins þegar Ásgeir féll frá árið 2012 og seldi svo reksturinn á síðasta ári.