- Auglýsing -
Karlmaður er látinn eftir skotárás í Sandviken í Svíþjóð í gærkvöldi. Íbúar á svæðinu segjast hafa heyrt hátt í tíu skotum hleypt af en árásin átti sér stað rúmlega sex í gærkvöldi.
Sænski miðillinn SVT fjallaði um málið en lýsti lögreglan því yfir að atvikið yrði rannsakað sem morðmál. Maðurinn sem lést var 25 ára gamall en ekki hefur verið greint frá nafni hans að svo stöddu. Tveir hafa verið handteknir í tengslum við málið.