Klukkan 3.40 í nótt barst Innbrotsboð frá skóla í hverfi 104. Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í hverfinu eftir að hafa reynt að hlaupa undan lögreglu. Hann var með þýfið, fartölvur og fleira, meðferðis í bakpoka og tösku. Maðurinn var vistaður i fangageymslu.
Um áttaleytið í gærkvöldi var mjög ölvaður karlmaður á fertugsaldri handtekinn á veitingastað í miðbænum. Var hann með leiðindi við starfsfólk og neitaði að greiða fyrir veitingar sem hann hafði pantað og neytt. Maðurinn vistaður í fangageymslu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en einnig voru sex ökumenn teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis/fíkniefna.