- Auglýsing -
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Serbíu í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í handbolta klukkan 17:00 í dag.
Miklar væntingar eru gerðar til liðsins eins og gengur og gerist með landsliðið og telja sérfræðingar að liðið eigi möguleika á að lenda í efstu þremur sætunum ef allt gengur upp en landsliðið náði ekki að sýna sitt rétt andlit á Heimsmeistaramótinu í fyrra þar sem liðið lenti í 12. sæti. En hvað segja lesendur Mannlífs um möguleika liðsins?