Handþvottur og hreinlæti hefur verið fólki ofarlega í huga undanfarið en á vef landlæknis er lögð mikil áhersla á að góð handhreinsun sé mikilvægasta ráðið fyrir heilbrigða til að forðast COVID-19 smit.
Þar sem handþvottur er mikilvægasta sýkingavörnin er nauðsynlegt að vanda til verka en rannsóknir hafa sýnt að almennt virðist fólk ekki þvo sér nægilega oft né nægilega vel um hendurnar.
Á vef BBC er að finna meðfylgjandi myndband þar sem Dr. Adele McCormick frá háskólanum í Westminister í London sýnir hvernig á að þvo hendurnar. Í myndbandinu notar hún UV-flúorljós til að sýna hvar bakteríur leynast helst á höndunum sé handþvotturinn ekki nógu góður.
Á vef landlæknis er svo að finna góðar upplýsingar um hvernig á að þvo á sér hendurnar.