Kvenkyns fangavörður hefur verið dæmd í fangelsi fyrir að stunda kynlíf með fanga en atvikið náðist á öryggismyndavél.
Fangavörðurinn, Shania Begum (25), var á dögunum dæmd í 16 mánaða fangelsi í Birgmingham eftir að upp komst um ,,óviðeigandi samband‘‘ hennar og fangans Joshia Mullings. Shania var sögð hafa daðrað mikið við fangana og því hafi fleiri öryggismyndavélar verið settar upp í fangelsinu. Yfir nokkra daga tímabil sást til fangavarðarins og Joshua stunda kynlíf inn í geymsluskáp í fangelsinu.
Verjandi Shaniu sagði fyrir dómi að hún sýndi iðrun og sæi mikið eftir gjörðum sínum. Þá sagðist hún hafa verið undir gríðarlegu álagi á þeim tíma sem atvikin áttu sér stað. Bæði hafi hún verið að sinna veikum fjölskyldumeðlim en einnig hafi hún verið óhamingjusöm í hjónabandi sínu. Dómari taldi iðrun litlu máli skipta í málinu og var hún að lokum dæmd til fangelsisvistar.