- Auglýsing -
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rúmlega þrjú í dag vegna fallhlífaslyss sem varð að Kirkjufelli í Grundarfirði.
RÚV greinir frá að maður með fallhlífarbúnað ætlaði að svífa niður af fjallinu en lenti í sunnanverðri hlíðinni. Mikill viðbúnaður er á svæðinu vegna slyssins og samkvæmt heimildum RÚV var fjöldi manns sjónarvottar að slysinu.