Starfsmaður á flugvallakaffihúsi réðst á yfirmann sinn.
Samkvæmt miðlum vestanhafs hófust deilur milli konunnar og samstarfsmanns hennar vegna „espresso“ bolla á kaffihúsinu Harvest & Grounds en í myndbandi sem fjölmiðlar hafa birt ræðst konan að samstarfsfólki sínu og yfirmanni. Atvikið gerðist á stórum flugvelli í Atlanta í Bandaríkjunum.
Í þessu ótrúlega myndbandi sést konan kýla samstarfsfólk sitt, reyna kasta stól í það og hoppa yfir afgreiðsluborð. Þá biður yfirmaður hennar vitni að hringja á lögregluna. Þegar lögreglan mætti á svæðið var konan farin af svæðinu og var í framhaldinu rekin. Ekki liggur fyrir hvort konan verður kærð fyrir árásina.
Hægt er að horfa á myndband af atvikinu hér.