Söngkonan Doja Cat var laminn af eldri bróður hennar.
Í skjölum sem fjölmiðlar vestanhafs undir höndum er greint frá því að Raman Dlamini, eldri bróðir Doja Cat, hafi lamið systur sína og rænt hana. Í skjölunum er einnig sagt frá því að bróðirinn hafi kýlt Dojo Cat með þeim afleiðingum að hún missti tönn. Söngkonan fræga er sögð vera leitast eftir því að fá nálgunarbann á bróður sinn en ekki er víst að hún fái það.
Í gögnunum er vitnað í móður þeirra systkina og segir hún Doja Cat hafi líka þurft að hlusta á Raman tala á mjög niðrandi máta um söngkonuna og hótað henni ítrekað. Í dómsgögnum er sagt frá því að Raman hafi áður hlotið nálgunarbann gagnvart fjölskyldumeðlimum en það sé nú útrunnið.