Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson eftirsóttur.
Breski fjölmiðillinn Daily Mirror greinir frá því að Genoa, félagslið Alberts, hafi sett háan verðmiða á Albert. Talið er að lið muni þurfa greiða að minnsta kosti 21 milljón punda fyrir Albert en eru tæplega 3,7 milljarðar íslenskra króna.
Talið er að West Ham United, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni, sé líklegasti áfangastaður Alberts en hann hefur verið orðaður við stórlið á borð við Roma, AC Milan og Juventus. Albert hefur skorað níu mörk í 19 deildarleikjum á tímabilinu hingað til.
Eins gott og tímabilið hefur verið fyrir Albert á Ítalíu hefur hann ekki mátt spila með íslenska landsliðinu eftir að hann var kærður fyrir kynferðisbrot seinasta sumar en samkvæmt reglum KSÍ má ekki velja hann í hópinn þar til málinu er lokið.