- Auglýsing -
Lögreglunni barst tilkynning í gær um ökumann sem áreitti ungar stúlkur í Hafnarfirði. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort maðurinn náðist en atvikið átti sér stað á Völlunum. Síðar um daginn sinnti lögregla útkalli í Garðabæ en þar var karlmaður í annarlegu ástandi. Sá hafði gengið á milli húsa og tekið í hurðarhúna. Þá handtók lögregla annan karlmann í Garðabæ. Er hann grunaður um að hafa brotist inn í hús en sá var einnig í annarlegu átstandi.