Einhver vinsælasta útvarpskona landsins, Sigga Lund, var látin fara frá Bylgjunni á dögunum og henni gert að hætta störfum strax. Sigga upplýsti þetta á Facebook. „Minna starfskrafta er ekki lengur óskað,“ sagði hún í færslunni. Sigga er hokin af reynslu og hefur um langt árabil starfað við útvarp við aðdáun og vinsældir hlustenda. Uppljóstranir hennar um sértrúarsöfnuði fyrir margt löngu vöktu verðskuldaða athygli.
Alls var 11 manns sagt upp hjá Sýn í sparnaðarskyni. Önnur þekkt útvarpskona, Valdís Eiríksdóttir, er einnig í þeim pakka og staðfesti hún að sér hefði verið sagt upp eftir níu ára starf hjá fjölmiðlafyrirtækinu. Valdís starfaði undir það síðasta með Heimi Karlssyni í morgunþættinum Bítinu. Vala sagðist hafa ætlað að hætta sjálf þegar uppsögnin barst. „Þið munuð heyra í mér á nýjum vettvangi fljótlega,“ hefur DV eftir henni.
Báðar eru útvarpskonurnar sáttar með að hætta hjá Sýn. Víst er að þeirra bíða ótal tækifæri …