Lögregla var kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á Reykjanesbraut. Þar hafði fólksbíl og vöruflutningabifreið lent saman og var einn fluttur á slysadeild. Nokkuð var um útköll vegna umferðaróhappa meðal annars í hverfum 101, 113 og 104. Þá kemur fram í dagbók lögreglu að engin slys urðu á fólki.
Um kvöldið hafði lögregla afskipti af ökumanni sem grunaður var um ölvunarakstur. Maðurinn var látinn blása og reyndist ekki vera undir áhrifum en um var að ræða erlendan ferðamann sem var óvanur að keyra við vetraraðstæður. Í Hlíðunum voru tveir menn handteknir, grunaðir um sölu fíkniefna. Í Breiðholti var lögregla kölluð til vegna grunsamlegra mannaferða en þegar betur var að gáð var blaðberi þar á ferð.