Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, vill ekki spila við Ísrael.
„Tilfinningin er sú að þetta gæti orðið erfitt andlega fyrir leikmennina,“ sagði Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, í samtali við mbl.is um fyrirhugaðan landsleik Íslands gegn Ísrael sem fer fram í mars.
Mikil umræða hefur skapast undanfarna daga um landsleikinn og hafa margir talið að Ísland eigi að neita að spila við Ísrael, í ljósi þess að 26 þúsund Palestínumenn hafi verið drepnir af stjórnvöldum þar ytra, líkt og var gert við Rússland í framhaldi af innrás þeirra í Úkraínu. Munurinn er þó að Knattspyrnusamband Evrópu hefur ekki rekið Ísrael úr keppni líkt og var gert við Rússland á sínum tíma en leikurinn við Ísrael er hluti af umspili um sæti í Evrópukeppni landsliða. Þó er rétt að taka fram að í yfirlýsingu sem KSÍ sendi frá sér um Rússland var tekið fram að þessi ákvörðun væri ákvörðun stjórnar sambandsins og á við um alla leiki, hvort sem þeir væru á vegum Knattspyrnusambands Evrópu eða ekki.
„Ég myndi helst ekki vilja spila gegn Ísrael, óháð hvaða íþrótt og eins og staðan er í dag, en það er mikilvægt að halda pólitík og stjórnmálum aðskildum frá íþróttum að mínu mati,“ sagði landsliðsþjálfarinn.