Miðvikudagur 23. október, 2024
3 C
Reykjavik

Ákærður fyrir að plata lögregluna: „Dauðinn eru endalok ykkar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sprengjuhótanir í tölvupósti í febrúar á síðasta ári. Hótanirnar bárust með tæplega 25 mínútna millibili að kvöldi til en manninum er gefið að sök að hafa gabbað lögregluna með misnotkun hættumerkja.

„Eins og ríkið veit, mun sprengjan springa í dag. Greinið lögreglunni frá því að einhvers staðar á næstu fimm kílómetrum er sprengjugildra. Dauðinn eru endalok ykkar […] Áttið ykkur á því að ef þið komið nálægt mér mun ég bjóða ykkur allt sem ég hef safnað í langan tíma. Maðurinn meinar það sem hann segir,“ segir í hótun sem maðurinn sendi en engin sprengja var til staðar. Í hinni hótuninni skrifar maðurinn: „Staðurinn er uppfullur af sprengiefnum. Höfuð og hjörtu barna ykkar munu springa.“ Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness en farið er fram á refsingu auk þess að hann greiði allan sakarkostnað

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -