- Auglýsing -
Leikarinn Danny Masterson sem dæmdur var fyrir að nauðga tveimur konum hefur verið fluttur í hámarks öryggisfangelsi þar sem grannt er fylgst með honum allan sólarhringinn.
Leikarinn fékk 30 ára til lífstíðar dóm fyrir brot sín og hefur hann síðan þá setið í North Kern State fangelsinu í Kaliforníu. Á mánudaginn var tekin ákvörðun um að flytja Danny í Corcoran fangelsið í Kaliforníu þar sem hann mun að öllum líkindum afplána dóminn. Leikarinn, sem er 47 ára gamall, getur fyrst sótt um reynslunausn árið 2042.