Yfirgnæfandi meirihluti þátttakanda, skoðanakönnunar Mannlífs, telja peningastefnunefnd Seðlabankans muni ákveða að halda stýrivöxtum óbreyttum, eða 63 prósent. Þá telja 20 prósent að vextir verði lækkaðir og 17 prósent að nefndin velji að hækka þá.
Í gær spáði Landsbankinn líkt og lesendur Mannlífs að ákvörðunin yrði um að vextir yrðu óbreyttir: „Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi meginvöxtum bankans óbreyttum í 9,25% í næstu viku. Þótt verðbólgan fari hjaðnandi og flestir hagvísar bendi í rétta átt teljum við ólíklegt að nefndin telji tímabært að lækka vexti. Við búumst frekar við að nefndin stígi varlega til jarðar og bíði eftir auknum slaka í þjóðarbúinu, ekki síst vegna óvissu í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður og viðbrögð stjórnvalda við hamförunum í Grindavík.“
Hér að neðan má sjá nánari útlistingu á niðurstöðu könnuninnar.
7. febrúar næstkomandi verður ný vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans opinberuð.