- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að hörðum árekstri sem varð á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegur í gær. Ágreiningur er um stöðu umferðaljósa þegar áreksturinn varð og eru því vitni beðin um að gefa sig fram.
Þau er telja sig geta gefið upplýsingar um áreksturinn eru vinsamlegast beðin um að gefa sig fram við lögreglu í síma 4441000 eða senda upplýsingar á netfangið [email protected].
Eftirfarandi færsla var gefin út af lögreglunni á samfélagsmiðlinum Facebook en hana má sjá í heild hér að neðan: