- Auglýsing -
Freyja Haraldsdóttir er komin í samband en sá heppni er David Agyenim Boateng og er frá Gana.
Smartland segir frá því að doktorsneminn, baráttukonan fyrir réttindum fatlaðra og fósturmamman Freyja Haraldsdóttir, hafi fundið ástina og sé komin í samband en hún skráði sambandið nýlega á Facebook. Kærastinn heitir David Agyenim Boateng og er frá Gana en hann er nemi við Háskóla Íslands.
Á bóndadaginn birti Freyja mynd af kærastanum en við myndina skrifaði hún: „Fallegi og góði bóndinn.“