- Auglýsing -
Lögreglu barst tilkynning upp úr klukkan tvö í nótt vegna innbrots í verslun á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla fór á vettvang en þjófarnir voru á bak og burt þegar þangað var komið. Síðar um nóttina, um klukkan hálf fjögur, barst lögreglu önnur tilkynning vegna innbrots en að þessu sinni hafði verið brotist inn í heimahús. Þá kemur fram í dagbók lögreglu að bæði málin eru í rannsókn. Auk þess sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti en að öðru leyti var nóttin hin rólegasta.