Milljarða tjón varð þegar frystiskápur á Karolinska sjúkrahúsinu í Svíþjóð bilaði skömmu fyrir jól en The Guardian fjallaði um málið. Þá kemur fram að ómetanleg sýni hafi eyðilagst þegar frystirinn bilaði en sýnin höfðu verið geymd í 190 gráðu frosti í skápnum.
Sjálfvirkt kerfi í frystinum fyllir reglulega á köfnunarefni sýnanna en eiga hylkin að þola fjögurra daga hlé, í þetta sinn liðu hins vegar fimm dagar sem varð til þess að sýnin eyðilögðust. Atvikið átti sér stað þann 23. desember en ekki liggur fyrir hvað olli biluninni að svo stöddu.