Einn efnilegasti tónlistarmaður landsins er Patrik Atlason, Prettyboitjokko, sem undanfarið ár hefur farið með himinskautum í vinsældum. Kappinn er snjall lagasmiður og hefur náð fjölda laga sinna inn á vinsældalista.
Fylgifiskur frægðarinnar er öfund minnipokafólks sem leggur lykkju á leið sína til að sverta þá sem rísa upp úr fjöldanum. Á meðal þeirra sem hafa hnjóðað í Patrik er Egill Helgason bókmenntapáfi sem farið hefur mikinn í athugasemdakerfi samfélagsmiðla og talað tónlistarmanninn niður og nánast verið með hann á heilanum. Egill er á sama tíma stöðugt að mæra son sinn, Kára Egilsson, sem rétt eins og Patrik er frábær tónlistarmaður.
Patrik tekur niðurrifstali Egils með þögninni. Hann upplýsti í Bítinu á Bylgjunni að hann svaraði ekki gagnrýni fólks sem hann væri ekki virðingu fyrir og Egill væri í þeim flokki …