- Auglýsing -
Bláa lónið hefur verið rýmt auk allra athafnasvæða vegna skjálfta í kjölfar eldgoss við Sundhnjúkagígaröð, segir í tilkynningunni frá Bláa lóninu.
„Við viljum þakka gestum góðan skilning, starfsmönnum fagleg vinnubrögð og viðbragðsaðilum gott samstarf,“ segir í tilkynningunni frá framkvæmdastjóra Bláa lónsins.
Gestir sendir á önnur hótel og starfsfólk til síns heima.
Allar teljandi starfstöðvar í Svartsengi verða lokaðar í dag.