- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Daníel Loga Matthíassyni, 23 ára. Síðast er vitað um ferðir hans í Krónunni á Fiskislóð úti á Granda.
Lýsing:
Daníel Logi er með dökkt krullað sítt hár bundið í hnút. Hann er klæddur í svarta úlpu, hvítri rúllukragapeysu, ljósbrúnum buxum og svörtum skóm.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Daníels Loga eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.