Leikarinn og grínistinn Jón Gnarr lofsamar Hrísey í nýrri færslu á Instagramreikningi sínum. Hann er á ferðalagi með leikhópunum sem vinnur að verkinu And Björk of course, eftir Þorvald Þorsteinsson. Verkið verður frumsýnt í lok febrúar á Akureyri.
Jón segir frá því að leikstjóri verksins, Gréta Kristín Ómarsdóttir, sé fædd og uppalin á Hrísey og hafi hópurinn skellt sér í dásamlega ferð út í eyjuna.
Þar heimsóttu þau búðina, skelltu sér í sund þar sem Jón Gnarr tók af sér sjálfu. Þá skoðaði hópurinn Hákarlasafnið og endaði ferðalag sitt á að fá sér fish and chips, upp á breska vísu, á veitingastaðnum Verbúðinni 66.
„Þetta var í fyrsta en ekki síðasta skipti sem ég heimsæki þessa merkilegu eyju. Margt mjög spennandi að gerast þarna!“ segir Jón Gnarr í lokin.
Hér að neðan má sjá færslu Jóns í heild:
View this post on Instagram