- Auglýsing -
Umferðaslysið sem varð á Reykjanesbraut þriðjudaginn 30. janúar var banaslys.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að maðurinn sem lést hét Eiríkur Örn Jónsson en hann lætur eftir sig unnustu og fjögur börn.
Alls hafa nú sjö látist í umferðinni á Íslandi það sem af er ári.
Mannlíf sendir fjölskyldu og vinum Eiríks innilegar samúðarkveðjur.