Foreldrum leikskólabarna í Mosfellsbæ barst bréf í dag þess efnis að nú geta foreldrar pantað bæði grænmetis- og veganfæði fyrir börn sín í leikskólum bæjarins.
„Frá og með næsta mánuði (mars 2020) geta foreldrar óskað eftir grænmetisfæði (ekki kjöt) eða veganfæði (engar dýraafurðir) fyrir börn sín í leikskólum Mosfellsbæjar,“ segir meðal annars í bréfinu.
Tilkynningu Mosfellsbæjar er deilt inn í Facebook-síðuna Vegan Ísland og ljóst er að margir grænkerar taka þessu framtaki bæjarins fagnandi. „Stórkostlegt er að sjá framtíðina komna inn í gæslustofnanir,“ segir einn grænkeri við færsluna.
Í Mosfellsbæ eru átta leikskólar: Hlaðhamrar, Hlíð, Reykjakot, Leirvogstunguskóli, Höfðaberg, Hulduberg, Krikaskóli og Helgafellsskóli.