Íbúi í miðbæ Reykjavíkur mátti reiða sig á hjálp frá slökkviliðinu í gærkveldi. Íbúinn hafði séð póstsendingu til sín í póstkassanum. Forvitinin bar einstaklinginn ofurliði en í stað þess að sækja lyklana sína að kassanum ákvað hann að reyna að fiska upp sendinguna með fingurnum. Hann stakk höndinni fulllangt inn með þeim afleiðingum að hún festist í lúgu kassans. Slökkviliðið mætti og voru viðbragðsaðilar snöggir að leysa viðkomandi úr prísundinni.
Frá þessu segir í Fésbókarfærslu Slökkviliðis á höfuðborgarsvæðinu.
Þá segir að slökkviliðið hafi sinnt tveimur öðrum útköllum á dælubílum og var annað þeirra vegna gaskúts sem hafði verið hent í almenna ruslatunnu og lak gasi.
„Boðanir fyrir sjúkrabifreiðar voru svo 87 síðasta sólarhringinn en af þeim voru 27 forgangsverkefni.“
Hér að neðan má sjá færsluna í heild: