Einhver hús í Reykjanesbæ eru að fá heitt vatn inn til sín segir í færslu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Vilja yfirvöld upplýsa að heita vatnið sé alls ekki til notkunar, heldur ætlað til fyrirbyggjandi aðgerða.
„Staðan er sú að það er verið að keyra heitu vatni á sérstökum tankbílum til Reykjanesbæjar og er því vatni stýrt inn á lagnakerfið til að halda því heitu.“
Er aðgerðin fyrirbyggjandi svo ekki þurfi að byrja á að hita upp lagnakerfið þegar búið verður að gera við heitavatnslögnina.
Framkemur að einungis sé um að ræða brota -brota af því vatni sem öllu jafna rennur um kerfið. „Afar mikilvægt að nota þetta vatn ekki eins og við gerum til daglegra nota heldur er mikilvægt að við leyfum þessu vatni að renna um kerfið.“
Hér að neðan má sjá færslu lögreglunar í heild: