Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, varð fyrir áfalli í gær þegar snjóbolti skall á bifreið hennar. Hún lýsti atvikinu sem svo að karlmaður nokkur hafi staðið fyrir aðförinni og auk þess hreytt í hana ókvæðisorðum og fyrirskipað henni ítrekað að fokka sér. Fleiri fúkyrði munu hafa fylgt með.
Mogginn sagði frétt af atvikinu eins og fleiri miðlar. Það merkilega var að útgangspunkturinn í Moggaféttinni var að snjóboltamaðurinn hefði verið einn af þátttakendum í mótmælum utan við Aiþingi þar sem þjóðarmorði á Palestínumönnum var mótmælt. Samkvæmt framsetningunni þá bera allir mótmælendur ábyrgð á snjókastinu og köpuryrðunum í garð Diljár …