Jón Gnarr, leikari og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, íhugar að alvöru að bjóða sig fram sem forseta Íslands. „Á hverjum degi fæ ég tölvupóst eða skilaboð eða tögg á samfélagsmiðlum varðandi þetta. Ég hafði aldrei pælt í því að vera forseti, en árið 2016, þegar Guðni var kosinn fyrst var fólk að stinga upp á mér og ég tók þetta alvarlega. Ræddi það við konuna mína. Þá komst ég að þeirri niðurstöðu að mig langaði ekki að fara í framboð. Núna kemur þetta aftur upp og ég get sagt að ég er að hugsa þetta af alvöru,“ segir Jón Gnarr í viðtali við blaðamann Akureyri.net.
„Sko. Ég held ég yrði fínn forseti.“
„Það, að hinir og þessir á samfélagsmiðlum, sem fylgja mér, telji að ég eigi að vera forseti, þá er ég ekkert viss um að það sé almennt það sem fólk í landinu er að pæla,“ segir Jón sem mun ekki taka endalega ákvörðun fyrr en eftir frumsýningu leikverksins And Björk of course, sem frumsýnt verður síðar í mánuðinum. „Ég tek því bara sem hæfilegri vísbendingu.“
Einhver þrýstingur er innan raða Besta flokksins en nýverið var skipt um forsíðumynd síðunnar. Jón Gnarr segist grunlaus, við Vísir.is, hver hafi breytt myndinni.
Í athugasemdum við nýju forsíðumyndina er hlekkur að undirskriftalista sem ber yfirskriftina: Jón Gnarr á Bessastaði 2024. Sex manns hafa skrifað undir þegar fréttin er rituð.