Lögreglunni barst í nótt tilkynning um yfirstandandi innbrot í miborg Reykjavíkur. Snögg í snúningum, mætti lögreglan og hafði hendur í hári krimmans. Innbrotsþjófurinn var umsvifalaust handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Tilkynnt var til lögreglu um þjófnað úr verslun. Einn aðili var handtekinn og var honum sleppt að skýrslutöku lokinni.
Lögreglu bárust einnig nokkrar tilkynningar um ölvaða einstaklinga til vandræða.
Talsvert var um að ökumenn væri stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum. Voru þeir sendir í blóðsýnatöku og sleppt að henni lokinni. Einn þeirra sem var stöðvaður var þess heldur með útrunnin ökuréttindi.