Í færslu frá lögreglunni er biðlað til ökumanna að kynna sér ljósabúnað ökutækisins áður en haldið er út í umferðina. Skylt er að hafa ljósabúnað bifreiðar á við akstur en mikið er um að bifreiðar séu ljóslausar í umferðinni. Stillingaratriði sem einfalt er að leysa. Sjálfstýring ljósbúnaðs er breytilegur milli bifreiða og í sumum tilfellum virkar neminn einvörðungu fyrir framljósin og er því bílinn ljóslaus að aftan, öðrum ökumönnum til ama.
„Það eru allt of margir sem hafa ekki kveikt á perunni varðandi það hvernig ljósastillingar ökutækja sinna virka. Að vera ljóslaus að aftan getur auk þess skapað hættu í umferðinni.“
Lögreglunni barst ljósmynd frá vökulum vini sem er orðinn langþreyttur og pirraður á fjölda ljóslausra.