Eins og fram hefur komið barst lögreglu tilkynning um eld í atvinnuhúsnæði við Fellsmúla. Dekkjalager var í húsnæðinu og er því mengun talsverð og eldsmatur mikill og erfiður viðureignar. Slökkvistarfi lauk upp úr miðnætti. Vettvangur var vaktaður af lögreglu í nótt.
Karlmaður var vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á þjófnaði. Hann var undir áhrifum áfengis- og/eða fíniefna við handtöku.
Ökumaður fékk að gista í grjótinu vegna gruns um að vera valdur að umferðaróhappi. Grunur lék á að hann væri undir áhrifum áfengis ásamt því að vera sekur að nokkrum öðrum umferðarlagabrotum.