- Auglýsing -
Einar Guðni Þorsteinsson er maðurinn sem lést í umferðaslysi á Suðurlandsvegi, skammt frá Pétursey þann 29. janúar síðastliðinn.
Mbl.is greinir frá en Einar var fæddur árið 1958 og var búsettur í Vík í Mýrdal. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn.
Slysið bar að með þeim hætti á sjöunda tímanum þetta kvöld, að dráttarvél og jeppi rákust saman á veginum en Einar var úrskurðaður látinn á vettvangi. Fjórir voru fluttir með þyrlu á Landspítalann.