Jón Gnarr heimsótti Hælið – setur um sögu berklanna, sem er á Akureyri og var ánægður með safnið.
Hæfileikabúntið Jón Gnarr býr nú tímabundið á Akureyri þar sem hann leikur í leikritinu …And Björk of course en hann hefur nýtt tíma sinn fyrir norðan afar vel en þar hefur hann verið duglegur að fara í göngutúra með hundinum sínum og kíkt í Skógarböðin og fleira sem hægt er að gera í og við Akureyri. Það nýjasta sem hann gerði sér til ánægju var að kíkja á safn sem ber heitið Hælið – setur um sögu berklanna en vinkona hans og samleikkona í …And Björk of course, María Pálsdóttir leiddi hann í gegnum setrið. Óhætt er að segja að Jón var afar ánægður með Hælið.
Jón birti nokkrar ljósmyndir á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram og skrifaði eftirfarandi texta við þær:
„Skoðaði sýninguna um sögu berkla á Íslandi á HÆLIÐ setur um sögu berklanna undir leiðsögn minnar ágætu vinkonu María Pálsdóttir. vá, maður á bara engin orð. mig setur bara hljóðan. þetta er bara ein magnaðasta sýning sem ég hef séð ! og kaffihúsið möst eftir túrinn fyrir jöfnun, köku, smá baul og umræðu