Utanríkisráðherra Íslands segir að forsætisráðherra Ísraels verð að breyta viðhorfi sínu gagnvart tveggja ríkja lausninni.
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra, sem hefur verið stuðningsmaður Ísraela í stríði þeirra gegn íbúum Gaza, sagði á Alþingi í dag að Benjamin Netanyahu yrði að breyta viðhorfi sínu gagnvart tveggja ríkja lausninni á svæðinu en þingið í Ísrael samþykkti í gær andstöðu hans við slíkri lausn. Mbl.is sagði frá þessu.
Bjarni lét þessi orð falla undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir en þar var hann spurður út í nýleg ummæli Netanyahu en þar neitaði hann hugmyndum um sjálfstæði Palestínu, sem byggt yrði á tveggja ríkja lausninni. Bandaríkjamenn hafa unnið að slíkri lausn í sínum friðarumleitunum.
„Varðandi ummæli forsætisráðherra Ísraels þá get ég notað þetta tækifæri til þess að segja einfaldlega þetta: Þetta viðhorf verður að breytast. Þetta leiðir okkur ekki neitt. Tveggja ríkja lausnin er haldreipi okkar til þess að skapa varanlegan frið,“ sagði Bjarni á þinginu í dag.
Þá tók hann aukreitis fram að hið sama verði að gerast hjá forystu Palestínumanna og að Hamas þurfi einnig að breyta sínu viðhorfi. Sagðist hann ekki sjá neitt annað í stöðunni en tveggja ríkja lausn.
„Forystumenn þar hafa haft það að sjálfstæðu stefnumiði sínu að útrýma Ísraelsríki. Þetta verður allt saman að breytast. Við vonumst auðvitað til þess að friðarumleitanir sem nú standa yfir geti borið með sér einhverja von um langtímalausn og ég sé enga aðra leið í því en tveggja ríkja lausn.“ sagði Bjarni.