Athafnamaðurinn Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Gnúps, er ekki aðeins í ímyndarvandræðum vegna samskipta við Vitalíu Lazereva. Deilt er um framboð hans til stjórnar í Festi, eiganda N1 og Krónunnar þaðan sem hann hraktist eftir „Pottamálið“ þar sem hann var sakaður um blygðunarsemisbrot vegn Vitalíu. Lífeyrissjóðir í hópi hluthafa eru ósáttir og vilja halda honum úti. Þórður Már stendur einnig í flóknum málaferslum sem snúast í grunninn um það hvort hann hafi á árunum fyrir hrun náð með ólögmætum hætti háum fjárhæðum út úr fyrirtækinu Lyfjablómi ásamt einum eigendanna, Kristni heitnum Björnssyni. Hann og Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og ekkja Kristins, voru lögsótt af þrotabúi Lyfjablóms og krafin um greiðslu á rúmlega tveimur milljörðum króna vegna meints misferlis.
Þórður og Sólveig voru fyrir tveimur árum sýknuð í héraðsdómi af kröfu Lyfjablóms. Málinu var áfrýjað til Landsréttar þar sem nú standa harðar deilur um hæfi dómara til að fjalla um málefni auðfólksins. Hermt er að viðskiptalífið fylgist að sögn grannt með framvindunni enda einsýnt að verði þau Þórður Már sakfelld geti komið til ákæru og kröfu um harðrar refsingar á hendur Þórði Má. Skuggi málsins fylgir honum ekki síður en Pottamálið. Ekki þykir æskilegt að hafa mann með þannig farangur í stjórnum fyrirtækja …