Logi Bergmann Eiðsson, fyrrverandi sjónvarpsmaður, hefur ekki átt afturkvæmt í fjölmiðla eftir að Vítalia Lazereva, bar hann þeim sökum að hafa, ásamt ástmanni sínum Arnari Grant, brotið gegn blygðunarsemi hennar á hótelherbergi í Borgarfirði.
Logi missti vinnuna á Mogganum og þau verkefni sem hann hafði í Sjónvarpi Símans. Vítalía dró seinna í land með ásakanir sínar en Logi sat eftir utangarðs þar til hann var ráðinn til Samtaka atvinnulífsins til að að sinna verkefnum á borð við þau að lesa inn útvarpsauglýsingar.
Logi hefur fram undir það síðasta borið harm sinn í hljóði og haldið sig frá persónulegum viðtölum í fjölmiðlum en á dögunum urðu þau undur og stórmerki að hann mætti í viðtal í hlaðvarpið Hlöðvar. Logi var hinn hressasti og lýsti æskuárum sínum sem sósíalisti og seinna stórsigrum og himinháum samningum um störf sín í fjölmiðlum. Mikil sigurganga þar, að sögn Loga. Hann minntist ekki einu orði á Vítalíumálið og starfslok sín í fjölmiðlum.
Loks sagði hann frá hann tilhlökkun sinni vegna yfirvofandi flutninga til Washington þar sem eiginkona hans, Svanhildur Hólm, verður sendiherra í boði Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins …