Eldur logaði í einbýlishúsi við Stekkjarbakka í Elliðaárdal í gærkveldi. Kviknað hafði í þaki hússins. Þó nokkrar skemmdir urðu á húsinu sökum eldsins. Engin slys á fólki. Málið er nú til rannsóknar á borði lögreglu.
Tilkynning barst einnig lögreglu vegna elds í húsnæði í Laugardal. Ekki gaf lögregla frekari greinarskil á atburðinum.
Lögreglu barst tilkynning vegna einstaklings í annarlegu ástandi í miðborginni. Ku hann ekki hafa verið hæfur til að vera meðal almennings og var honum því stungið í grjótið.
Frá lögreglustöð 4 sem dekkar Grafavog, Mosfellsbæ og Árbæ, barst tilkynning um nytjastuld á ökutæki. Ekki leið þó á löngu uns ökutækið komst í leitirnar.