Patrik Atlason eða eins og sumir kalla hann Prettyboitjokko rétt komst undan tígrisdýri en vinirnir féllu í jörðina af hlátri.
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason gefur út nýtt lag 1. mars, sem ber heitið Sama um. Þetta tilkynnti hann á Instagram í gær og birti rándýra ljósmynd af sér með tónlistarmanninum Daniil og tígrisdýri. Af fleiri ljósmyndum sem Patrik birtir á Instagram eru þeir félagar staddir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Í dag birti Patrik spaugilegt myndband þar sem hann sést ber að ofan með tígrisdýr í bandi en dýrið virðist ekkert voðalega sátt við það (enda er náttúruleg búsvæði þeirra skógar, mýrlendi og graslendi). Þegar umsjónaraðili tígrisdýrsins tekur í taumana, bókstaflega, gerir kattardýrið atlögu að Patrik sem er fljótur að hlaupa í burtu. Félagar súkkulaðistráksins velta um af hlátri vegna þessa og heyrist einn þeirra segja í gegnum hláturinn: „Róa sig!“
Hér má sjá hið sniðuga myndskeið:
View this post on Instagram